Ef sérhverjum Mottverja rennur ekki blóðið til skyldunnar þegar hann les þetta þá er eitthvað mikið að! :mrgreen:

http://svfr.is/?pageid=4bddca66-3009-46d9-adf3-0146343b2cb0&NewsID=68a6c8ee-c1c2-4a26-b626-77083d37a2ae

Ég tók að mér að framfylgja samþykkt aðalfundar um fjárfestingu í einkennisklæðnaði fyrir Mottuna og þá sér í lagi merktum derhúfum. Mig minnir að samþykkt hafi verið að kaupa trukkahúfur í burgundy lit með plastneti að aftan, en það er erfitt að vera viss því fundargerðin hefur ekki ennþá ratað inn á vefinn :(

Nú er mér sá vandi á höndum að ég fann vefsíðu sem útbýr húfur, m.a. trukkahúfur og burgundy-litaðar húfur, EN EKKI burgundy-litaðar trukkahúfur.

Þannig að ég vil leggja það fyrir Mottuna hvort við viljum halda okkur við litinn eða trukkinn? Þið getið séð fleiri liti og stíla með því að smella á húfurnar.

Aðalfundur Vf. Mottu verður haldinn laugardaginn 19. nóvember kl. 20 hjá Jóni Atla.

Drög að dagskrá – viðbætur óskast í komment:

1. Hefðbundin aðalfundarstörf
2. Umræður um veiðisumarið 2011
3. Drög lögð að veiðisumrinu 2012
4. Óveiði Magnúsar í sumar
5. Lógó Mottunnar – hvar er það?
6. Gjaldkeri leggur fram ársreikninga og fjárlög næsta árs
7. Önnur umferð í umræðunni um óveiði Magnúsar í sumar
8. Dick Motta heiðraður
9. Aðrar tillögur afgreiddar
10. Önnur mál
11. Jólabjórsmökkun

Dick Motta varð áttræður á dögunum. Hann er frægur fyrir að hafa verið með fyrstu mönnum til að segja ,,It ain’t over ’til the fat lady sings” og svo þjálfaði hann í 25 ár í NBA. Fyrir hönd veiðifélagsins óska ég honum til hamingju! Flottari og betur girtari gaur er vandfundinn :D

Senn líður að Aðalfundi og þá þurfum við að ákveða hvert Mottan fer í árlegu ferð sína á næsta ári. Ekki er áhugi fyrir að endurtaka leikinn í Gufudalsánni þannig að við þurfum að finna nýtt svæði sem uppfyllir eftirfarandi skilyrði:

  1. Hefur 4 stangir ásamt veiðihúsi sem rúmar 8 manns.
  2. Sæmileg veiðivon á fiskum sem eru stærri en lófinn á Jóni Atla.
  3. Kostar ekki morðfjár (en manndrápsfjár kemur til greina).
  4. Leyfir allar veiðiaðferðir.

Tillögur óskast í komment!

Ég fór með 5 vinnufélögum í Norðlingafljót 14.-16. september. Ég veit ekki hvað ég á að segja. Þetta er sleppitjörn og við núlluðum. Ég er svo fúll að það eru ekki til orð yfir það. Ekki nóg með það heldur vorum við með 4 stangir í gangi í 24 tíma. Reiknið nú hversu mikill tími fór í að fá ekki fisk, setja ekki í fisk, fá ekki högg eða nart og sjá ekki eina einustu bröndu í ánni. Veðrið var fullkomið, nóg vatn í ánni og allar aðstæður hinar bestu. Nema við fundum enga laxa. Við löbbuðum milli hylja og skimuðum þá alla og sáum enga hreyfingu, enga bylta sér enga skugga ekki neitt. Svo skoðuðum við veiðibókina og veiðin í hana var ekki skráð í tímaröð sem var mjög furðulegt og ég sá ekki betur en að það vantaði hollið sem var á undan okkur sem átti að hafa tekið 13 laxa. Ég sé heldur betur eftir peningnum sem fór í þetta. Vonbrigðin eru mest því að allt annað var til staðar. Flott gisting, falleg á, fallegir veiðistaðir og aðstaða öll með besta móti. Ég hefði alveg getað sætt mig við að hafa núllað ef hollið hefði fengið sæmilega veiði. Þá getur maður kennt sjálfum sér um eða talað um óheppni en þegar 6 veiðimenn finna ekki fisk í ánni þá finnst mér eitthvað mikið að. Stundum er fiskurinn ekki í tökustuði en þá er alla vega spenna við að reyna að fá hann til að taka en þegar þú sérð ekki fisk þá finnst þér þú alltaf vera að bjóða vatni nýja og nýja flugu. Já það sem átti að vera flottur endir á góðu veiðisumri endað sem mestu vonbrigði sem ég hef upplifað í veiði. Ég held ég kíki í Meðalfellsvatn fyrir lok þess eða í eitthvað annað skemmtilegt vatn sem enn er opið og nái í fisk og skemmti mér 100 sinnum betur fyrir brotabrot af peningnum sem fór í þessa vitleysu. Ég skora á menn að gúggla eitthvað nýlegt um Norðlingafljót.

Fór með Lalla félaga mínum í Meðalfellsvatn í dag. Hann mætti með bátinn sinn og við byrjuðum að veiða bakkann gegnt bústaðnum hans Bubba Morthens. Við fengum ekkert en sáum slatta af fiski. Svo fórum við að Sandá nema lendum í hörkugróðri og þurftum að róa úr honum. Rafmagnsmótorinn fékk fullt af gróðri í skrúfuna og það þurfti að hreinsa hann af. En svo komumst við að ströndinni hjá Sandá. Þar setti ég svartan nobbler undir með grænt bött og fékk á í þriðja kasti og það var 2 punda urriði/sjóbirtingur. Síðan gerðist ekkert í dágóðan tíma. Við ákváðum að fara aftur í bátinn og prófa stöndina þeim megin sem Bubbi er og ég útbjó þvottasnúru með 4 nobblerum (hvítum, ólívugrænum, brúnum og svörtum en ég hafði prófað appelsínugulan lengi hinum megin). Fljótlega fékk ég einn og svo annan. Þá flækti ég þvottasnúruna og klippti allt draslið og setti nýja þvottasnúru á og nú með gylltan, rauðan og svartan nobbler á og aftur fékk ég fisk sem fyrr á svarta nobblerinn. Þeir litu ekki við hinum. Þá tók Lalli fram Black Zulu Nobblerinn sinn en það er svartur nobbler með rauðu bötti og tók tvo á þá flugu og fékk nokkur högg meðan ekkert gerðist hjá mér.

Veðrið var hrikalega flott og þetta var ótrúlega afslappandi veiðiferð :-)

Þegar við vorum á bátnum þá sigldum við hægt um (heyrist ekkert í rafmagnsmótornum) drógum nobblerana á eftir okkur og höfðum þá vel úti og svo stoppuðum við mótorinn þegar fiskur var á. Náðum 5 af þessum 6 fiskum þannig.

Ég skrapp í svakalega flottu veðri í Hafravatn í kvöld. Fiskar voru að vaka út um allt vatn og ég meina allt vatn. Það var bara rugl hvað mikið var í gangi. En svo komu tveir gaurar á sæköttum og stoppuðu lætin í fiskunum af tímabundið. Þegar þeir hættu byrjuðu lætin aftur. Ég ákvað að reyna þurrflugu af því að lætin voru svona mikil og þeir voru að taka flugur í yfirborðinu. Ég hafði aldrei fengið fisk áður á þurrflugu þannig að þegar ég fékk loksins fisk á Black Gnat þurrflugu þá brosti ég hringinn þó að það hafi bara verið 100 gramma stebbalingur. En flugan var ekki að mokveiða og fiskurinn hætti að taka í yfirborðinu en var greinilega að taka rétt við yfirborðið þannig að ég setti Pheasant tail undir án kúluhaus og fékk tvo 50 gramma urriða. Síðan ákvað ég að prófa Dentist og ráði einum 150 gramma urriða áður en ég fór svo heim. Ég hafði aldrei áður veitt í Hafravatni þannig að þetta voru mínir fyrstu fiskar þar :-) Á leiðinni að bílnum notaðist ég við höfuðljós til að sjá hvert ég var að fara og leit upp í hlíðina fyrir ofan mig og sá tvö augu horfa á mig. Ég spáði í því um stund hvort þetta væri minkur eða refur en svo sá ég þegar ég kom nær að þetta var kettlingur sem ekki var með ól. Ef þetta var ekki villiköttur þá gæti einhver verið að leita að þessum kettlingi sem hljóp frá mér í myrkrið. En svakalega sjást augun í þessum dýrum vel í myrkri þegar jafnvel daufu ljósi er beint að þeim ;-)

Fórum af stað úrbænum rétt fyrir hádegi á miðvikudegi; Ég, Óli og Mussi saman á einum bíl og Jón, Gamli og Hrabbi á hinum. Stemningin á leiðinn var hrikalega góð, og menn töluðu mikið um komandi MOK. Þegar við komum uppeftir fengum við afhenda lykla að stórglæsilegum kofa; tvöfalt gler, baðherbergi, innstungur án rafmagns og fleiri nútíma þægindi.
Við rukum út, ræddum mikið um hvar við ættum að byrja og úr varð að við byrjum í Grænavatni (brutum þar Hellavatns hefðina). Þar byrjaði fjörið, þar sem Gamli veiddi glæsilega í bakið á 6punda urriða með hvítum nobbler. Jón veiddi í einn fisk þarna, sem stökk og náði að leysa sig, skilst að bremsan hafi verið e-ð vanstilt hjá verkfræðingnum. Urðum ekki meira varir þar þannig að við færðum okkur í Stóra Hraunvatn. Þar náði ég að setja í einn rúmlega 3punda urriða á heimanýtt afbrigði af rauðum nobbler (hér eftir kallað Rauður-poor-man’s-Nobbler). Held að meira hafi ekki gerst þar og fórum því næst í Litla sjó og enduðum kvöldið þar. Ég, Óli og Maggi vorum á ströndinni við stapann sem við förum stundum á. Óli náði að setja í einn ágætis urriða þar og Hrabbi náði einum flottum í Hermansvíkinni. Þannig að eftir fyrstu vakt voru komnir 4 fiskar á land, rukum uppí hús og grilluðum lamb og spjölluðum um MOK morgundagsins áður en við sofnuðum. Vorum komnir útí Grænavatn rétt fyrir 8, vorum fljótir að afskrifa staðinn sem við vorum á þar og ég, Óli og Maggi drifum okkur í burtu. Minnir að við höfum farið beint í Hellavatn, þar sem ég náði að setja í einn 3.8p urriða á svartan dýrbít. Kíktum svo í Rauðagíg, þar sem var mikið líf, ekki ósvipað og ég, Maggi og Óli lentum í í Nýranum forðum daga, en ekkert vildi hann taka. Þegar við erum að fara þaðan stendur Maggi uppá klett og horfir yfir ströndina í Rauðagíg, sér þar einn drjóla synda rólega eftir ströndinni, án þess að hugsa sig um grítir hann spúninum á hann en hann snéri bara við og hvarf útí dýpið. Gamli náði að veiða í annan flottan á veiðistað sem hefur hlotið nafnið Gamli Stapi (ef ég man rétt) en í þetta skiptið tók hann fluguna í kjaftinn. Svona var restin af ferðinni eiginlega, Óli náði einum til í Litlasjó, Hrabbi tók einn 4.5p í fisklausu Hellavatni, Maggi náði 2 í Litla sjó um kvöldmataleytið á heila deginum. Seinasti dagurinn var líka erfiður, þá var smá vindur og orðið svolítið kalt. Hann fór aðalega í stofnum Rannsóknar og Tilraunadeildar Mottunnar sem er komin með fyrsta verkefnið sitt sem verður unnið í vetur og þar að vera tilbúið fyrir næstu veiðivatnaferð.


Heilt yfir var þetta flott ferð þó MOKIÐ hafi vantað. Við reyndum allt, flugur, maðk, örmaðka, makríl, spún en gekk illa að finna fiskinn. Jón sá hinsvegar mikið af fiski sem er gott.
Nú er bara að manna restina af stöngunum fyrir Gufudalsánna (sjá póst fyrir neðan) og moka upp litlum sætum bleikjum þar.

Pís ád.

Jæja drengir. Það er ein og hálf vika í Gufudalsána. Samkvæmt síðustu talningu eru þrjár stangir lausar – eru einhverjar hugmyndir um hvort/hvernig þær verða fylltar?